Vörumiðlun tekur við skilagjaldskyldum umbúðum á Blönduósi

Breytingar urðu hjá Endurvinnslunni með móttöku skilagjaldskyldra umbúða á Blönduósi í síðustu viku þegar Vörumiðlun tók við umboði þess. Flutti Endurvinnslan að Norðurlandsveg 1 og er opið alla virka daga frá 10 – 12 og 13 – 15.

Björgunarsveitin Blanda hefur séð um móttökuna fyrir Blönduósbúa og nærsveitamenn en á vef Endurvinnslunnar má sjá að víða um landið eru félagasamtök sem sjá um hana einkum á smærri stöðum.

Endurvinnslan hf. sem stofnuð var árið 1989, sér eitt um móttöku allra einnota drykkjarvöruumbúðum hérlendis, greiðir út skilagjald , undirbýr  til útflutnings og selur til endurvinnslu. Um 51 umboðsaðilar starfa fyrir félagið um allt land.

Fleiri fréttir