Yfir 2000 laxar veiddir í Blöndu

Nýjustu tölur frá heimasíðu Landssambands veiðifélaga, sýna að Blanda er komin yfir 2000 laxa en í heild hafa veiðst 2028 laxar. Í fyrra veiddust alls 4829 laxar í blöndu og því talsvert í þá tölu. 


Í Miðfjarðará hafa veiðst 2666 laxar en í fyrra bitu alls 6028 laxar á öngulinn. Blanda er eins og er í fjórða sæti yfir aflahæstu árnar en Miðfjarðará í öðru sæti. Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki vermir fyrsta sætið með 4664 laxa og Eystri-Rangá í því þriðja með 2481 laxa.

Fleiri fréttir