Yfir þúsund laxar komnir á land

Á vef Húna er sagt frá því að í síðastliðnri viku hafa veiðst um 42 laxar á dag úr Blöndu en samkvæmt vef Landssambands veiðifélaga var í gærkvöldi búið að veiða 1.030 laxa úr ánni á öllum svæðum en veitt er á 16 stangir. Heildarveiðin síðasta sumar var 832 laxar þannig að veiðin hingað til er orðin 24% meiri en allt árið í fyrra og ef áfram heldur sem horfir stefnir í að veiðin fari yfir 2 þúsund laxa.

Eins og fram hefur komið í fréttum er vatnsstaða í Blöndulóni mjög lág og þar að leiðandi minni líkur á því að áin fari á yfirfall. Það þýðir að fleiri dagar nýtast til veiðar í Blöndu. Árin 2009-2011 fór veiðin í Blöndu yfir 2 þúsund laxa, 2011 (2.032 laxar), 2010 (2.777 laxar) og 2009 (2.413 laxar).

Laxveiðin gengur einnig vel í öðrum húnvetnskum á. Samkvæmt vef Landssambands veiðifélaga var í gærkvöldi búið að veiða 678 laxa í Miðfjarðará, 189 í Vatnsdalsá, 170 í Víðidalsá en veiði þar hefur verið að aukast mikið undanfarna daga, 187 í Laxá á Ásum, 100 í Hrútafjarðará og Síká og 30 í Svartá.

Fleiri fréttir