Yfirlýsing frá almannavörnum
Almannavarnarnefnd Skagafjarðar og almannavarnanefnd Húnavatnssýslna vilja koma eftirfarandi tilkynningu á framfæri:
Veðurfræðingar á Veðurstofu Íslands höfðu samband við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vegna veðurspár næstu helgar. Í spákortunum er all snörp lægð með töluverðri úrkomu. Hitastigið er í kringum frostmark til fjalla og því má búast við slyddu eða snjókomu.
Ef spáin gengur eftir er réttast að bændur og aðrir sem eiga sitt undir veðrinu búi sig undir hvell sem gæti náð sama styrkleika og í september 2012.
Almannavarnir mun fylgjast náið með framvindu mála og koma á framfæri upplýsingum um leið og þær berast.