Yfirlýsing stjórnar Miðflokksins

Stjórn Miðflokksins harmar þá ákvörðun Birgis Þórarinssonar að yfirgefa þingflokk Miðflokksins nú strax að loknum kosningum og áður en þing hefur verið sett. Brotthvarf þingmannsins er fyrst og fremst áfall fyrir þann góða og öfluga hóp sem borið hefur Birgi á örmum sér sem oddvita flokksins í Suðurkjördæmi og unnið mikið og óeigingjarnt starf í kosningabaráttunni. Í því samhengi er ákvörðun þingmannsins mikil vonbrigði.

Stjórn Miðflokksins færir flokksmönnum þakkir fyrir mikla og ósérhlífna vinnu í aðdraganda kosninga ekki hvað síst flokksmönnum í Suðurkjördæmi sem lögðu mikið á sig við að afla stefnu flokksins fylgis í kosningunum. Flokkurinn metur framlag þessa fólks mikils og mun áfram berjast fyrir hugsjónum þess. Breytt skipan þingflokksins dregur ekki úr getu hans til að fylgja eftir þeim grunngildum og hugsjónum sem sameina okkur sem flokk.
9. október 2021
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Bergþór Ólason
Einar Birgir Kristjánsson
Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir
Karl Gauti Hjaltason
Þorsteinn Sæmundsson

 /Aðsent

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir