Zophonías Ari nýr formaður bæjarráðs
Zophonías Ari Lárusson var kosinn nýr formaður bæjarráðs Blönduósbæjar á fundi bæjarráðs sl. miðvikudag og tekur hann við af Kára Kárasyni. Þá var Anna Margrét Sigurðardóttir kosin varaformaður bæjarráðs og kemur hún ný inn í bæjarráðið, ásamt Oddnýju Maríu Gunnarsdóttur.
Þann 12. júní sl. fór fram kjör fulltrúa til eins árs í bæjarráð á fundi bæjarstjórnar Blönduósbæjar. Zophonías Ari Lárusson var kjörinn til áframhaldandi setu í bæjarráði. Anna Margrét Sigurðardóttir og Oddný María Gunnarsdóttir komu inn sem aðalmenn í stað Harðar Ríkharðssonar og Kára Kárasonar, sem gengu úr bæjarráði. Kári verður þá varamaður, auk Hilmars Þórs Hilmarssonar og Þórdísar Hauksdóttur.