Zumba partý alla helgina

Það verður sannkallað Zumba partý í íþróttahúsinu á Blönduósi um helgina þegar Lóreley Sigurjónsdóttir alþjóðlegur Zumba kennari mætir á svæðið. Að sögn Lindu Bjarkar Ævarsdóttur hafa nú þegar um fimmtíu manns skráð sig í tímana sem hefjast föstudaginn á morgun 12. okt. kl. 18:00-19:00. Á laugardaginn verður byrjað kl. 12:00 og dansað í einn klukkutíma en á sunnudaginn hefst tíminn klukkan 11:00.

Eins og flestir kannast við er Zumba sjóðandi heit líkamsrækt sem hefur farið sigurför um allan heim undanfarin misseri og segir Lóreley að Zumba sé fyrir þá sem vilja stunda skemmtilega líkamsrækt því brennslan er mikil og góð og er samblanda af dansi og fitness. Fjörug tónlist er leikin undir en notast er við suður ameríska tónlist og dansa eins og Salsa, Merenge, Cumbia og Reggaeton. Helsti kosturinn við Zumba er að það hentar öllum aldurshópum og segir Lóreley að sporin séu einföld, stuðið og fjörið mikið og tónlistin skemmtileg. „Sannkölluð fitubrennsluveisla sem kemur þér í betra form og betra skap á sama tíma.“

Fleiri fréttir