118 vinningar dregnir út hjá meistaraflokki kvenna

Dregið var í happdrætti meistaraflokks kvenna í fótbolta hjá Tindastóli á konudaginn. Happdrættið var liður í fjáröflun stelpnanna en þær stefna á æfingaferð til Spánar núna á vordögum til að undirbúa sig fyrir átökin í deild þeirra bestu í sumar.

Í tilkynningu frá deildinni kemur fram að alls voru seldir 736 miðar og voru dregnir út 118 vinningar sem hin ýmsu fyrirtæki styrktu stelpurnar um. Þær vilja þakka öllum kærlega fyrir þennan góða stuðning.

Vinninga er hægt að sækja á skrifstofu VÍS á Sauðárkróki alla virka daga frá 10:00-16:00 eða hafa samband við þann sem seldi miðann ef um er að ræða aðila sem ekki eru búsettir á Sauðárkróki.

Vinningaskrá er hægt að nálgast HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir