Adam Smári nýr formaður knattspyrnudeildar Tindastóls

~
~

Aðalfundur knattspyrnudeildar Tindastóls fór fram fyrr í mánuðinum en á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf ásamt stjórnarkjöri. Sunna Björk Atladóttir sem leitt hefur starf knattspyrnudeildar undanfarin ár steig til hliðar en Adam Smári Hermannsson tók við formennskunni af henni.

Adam Smári kemur nýr inn í stjórnina og en úr stjórn fór Magnús Jóhannesson eða bara Maggi í Brekkukoti. Nýja stjórn skipa því Adam Smári sem er formaður, Hjörtur Elefsen varaformaður, Magnús Helgason gjaldkeri, Guðný Axelsdóttir, Guðni Kristjánsson og Sunna Björk Atladóttir meðstjórnendur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir