Efnilegasti leikmaður Breiðabliks til Tindastóls

Grafík: Þórður Grétar Árnason
Grafík: Þórður Grétar Árnason

Inga Sigríður Jóhannsdóttir hefur gengið til liðs við Körfuknattleiksdeild Tindastóls og mun spila með liðinu á næsta tímabili.

Inga Sigríður, sem er 19 ára, er efnilegur leikmaður og mun einnig vera í Körfuboltaakademíu Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra.

“Inga Sigríður er með mikinn kraft og vilja til að gera vel á báðum endum vallarins. Hún spilaði mikið á síðasta tímabili í þessari deild og öðlaðist þar mikla reynslu í erfiðu verkefni með Breiðablik B. Inga Sigríður var valin efnilegasti leikmaður Breiðabliks eftir síðasta tímabil og erum við mjög glöð að hafa tryggt okkur krafta hennar í vetur.“ segir Helgi Freyr þjálfari liðsins.

Inga var stigahæst í liði Breiðabliks B á seinasta tímabili í fyrstu deild kvenna með 9 stig að meðaltali í leik. Hún skoraði því rúm 20% af stigum Breiðabliks B sem skoraði í heildina að meðtaltali 42,6 stig í leik. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir