Eva Rún áfram með Tindastól!

Grafík: Halldór Halldórsson
Grafík: Halldór Halldórsson
Körfuknattleiksdeild Tindastóls og Eva Rún Dagsdóttir hafa komist að samkomulagi um að Eva spili áfram á Króknum.
 
Eva Rún lék 23 leiki fyrir Tindastól í fyrstu deild kvenna á síðasta tímabili og skilaði þar að meðaltali 10.4 stigum, 14 í framlagi, 6.5 fráköstum og 5.9 stoðsendingum í leik.
 
"Það er mikill fengur fyrir Tindastól að Eva framlengi. Eva er ekki bara ótrúlega duglegur leikmaður á báðum endum vallarins heldur einnig frábær og hvetjandi félagsmaður. Eva sýndi það á síðasta ári að hún er tilbúin í stórt hlutverk í þessu liði og verður gaman að sjá hana taka þá reynslu með sér inn í þennan vetur." segir Helgi Freyr Margeirsson þjálfari meistaraflokks kvenna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir