Geks áfram sinn veg hjá Tindastól
Lettneski leikmaðurinn Davis Geks hefur samið við Körfuknattleiksdeild Tindastóls um að leika áfram með liðinu á næsta tímabili.
Geks leikur sem skotbakvörður og kom til Tindastóls á miðju síðasta tímabili.
Hann varð Íslandsmeistari með liðinu og skilaði að meðaltali 9,6 stigum, 3,3 fráköstum og 1,8 stoðsendingu í leik.
/SMH