Heimaleikir framundan
Í dag er leikdagur hjá meistaraflokki karla í körfubolta, þegar Haukar sækja Tindastól heim og hefst leikurinn klukkan 19:15. Í síðustu leikjum hefur verið mjótt á munum, framlengingar, svekkjandi töp og meiðsli. Upp upp og áfram Tindastóll. Hægt verður að kaupa hamborgara frá klukkan 18:15.
Stelpurnar okkar í Tindastól hafa aftur á móti unnið síðustu leiki og næsti leikur hjá þeim verður laugardaginn 25.nóverber, klukkan 18:00 þegar lið Aþenu heimsækir Síkið. Hægt verður að kaupa hamborgara frá 17:30.
Það verður stuð í Síkinu næstu daga, allir að mæta.
Áfram Tindastóll !!