Þórgunnur varð Íslandsmeistari í samanlögðum fimmgangsgreinum
Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna í hestaíþróttum fór fram á félagssvæði Fáks í Reykjavík nú um helgina. Þórgunnur Þórarinsdóttir, Hestamannafélaginu Skagfirðingi, varð þá Íslandsmeistari í samanlögðum fimmgangsgreinum í ungmennaflokki á Djarfi frá Flatatungu.
Þau kepptu í tölti (6,57), fimmgangi (6,63) og gæðingaskeiði (7,08) en þau urðu m.a. í 2. sæti í fimmgangi í ungmennaflokki.
Skagfirðingur átti flotta keppendur á mótinu sem og á Íslandsmóti barna og unglinga sem fram fór í Mosfellsbæ. Á Facebook-síðu Skagfirðings er farið yfir helstu úrslit mótsins >