Tindastóll tekur á móti Stjörnunni
Meistaraflokkur karla í körfubolta tekur á móti Stjörnunni úr Garðabæ í Síkinu í kvöld og hefst leikurinn klukkan 19:15. Hamborgararnir á sínum stað frá 18:15 eins og fram kemur á Facebooksíðu deildarinnar. Tindastólsbúðin verður að sjálfsögðu opin og hægt að nálgast árskortin. Leikurinn verður sýndur á Tindastóll TV, og brot úr leiknum verður í Skiptiborðinu á Stöð 2 sport. Fjölmennum í Síkið. Áfram Tindastóll