Tveir knapar frá Norðurlandi vestra í fyrsta úrtaki U-21 landsliðshópsins í hestaíþróttum

Guðmar og Þórgunnur. Samsett mynd. Ljósmyndarar: Eydís Ósk og Freydís Bergsdóttir.
Guðmar og Þórgunnur. Samsett mynd. Ljósmyndarar: Eydís Ósk og Freydís Bergsdóttir.

Á heimasíðu Landssambands Hestamannafélaga (Ihhestar.is) segir að Hekla Katharína Kristinsdóttir, landsliðsþjálfari U-21 landsliðsins í hestaíþróttum, sé búin að velja fyrsta úrtak í landsliðshóp sinn fyrir starfsárið 2024, alls 18 knapa. Voru þau Guðmar Hólm Ísólfsson frá Hestamannafélaginu Þyt og Þórgunnur Þórarinsdóttir frá Hestamannafélaginu Skagfirðingi valin í hópinn en framundan eru heilmikil verkefni því landsliðshópurinn starfar yfir allt árið. Hápunktur komandi árs er þátttaka á Norðurlandamótinu í Herning í Danmörku 8.- 11. ágúst næstkomandi og lokahópur Íslands á mótið verður kynntur í sumar.

Það er óhætt að segja að hópurinn sé ótrúlega vel skipaður og sterkir knapar að koma inn úr unglingaflokki þar sem samkeppnin hefur verið fyrnasterk undanfarin ár ásamt eldri og reyndari knöpum og ríkjandi heimsmeisturum frá því í Hollandi 2023.

Hópurinn er skipaður eftirfarandi knöpum:

Benedikt Ólafsson - Hestamannafélagið Hörður

Dagur Sigurðarson - Hestamannafélagið Geysir

Elva Rún Jónsdóttir - Hestamannafélagið Sprettur

Fanndís Helgadóttir - Hestamannafélagið Sörli

Guðmar Hólm Ísólfsson - Hestamannafélagið Þytur

Guðný Dís Jónsdóttir - Hestamannafélagið Sprettur

Hekla Rán Hannesdóttir - Hestamannafélagið Sprettur

Herdís Björg Jóhannsdóttir - Hestamannafélagið Sprettur

Hulda María Sveinbjörnsdóttir - Hestamannafélagið Sprettur

Jón Ársæll Bergmann - Hestamannafélagið Geysir

Matthías Sigurðsson - Hestamannafélagið Fákur

Ragnar Snær Viðarsson - Hestamannafélagið Fákur

Signý Sól Snorradóttir - Hestamannafélagið Máni

Sigurður Baldur Ríkharðsson - Hestamannaféglaið Sprettur

Svandís Aitken Sævarsdóttir - Hestamannafélagið Sleipnir

Unnsteinn Reynisson - Hestamannafélagið Sleipnir

Védís Huld Sigurðardóttir - Hestamannafélagið Sleipnir

Þórgunnur Þórarinsdóttir - Hestamannafélagið Skagfirðingur

Landssamband Hestamannafélaga og Feykir óskar þessum knöpum innilega til hamingju með sæti sín í U21-landsliðshóp Íslands í hestaíþróttum sem horfir með eftirvæntingu fram á spennandi tímabil.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir