Langi Seli og Skuggarnir á Sauðárkróki
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf, Fréttir
03.10.2024
kl. 14.11
gunnhildur@feykir.is
Langi Seli og Skuggarnir troða upp á Grána Bistro föstudagskvöldið 4. október næstkomandi og byrja tónleikarnir kl. 21.00.
Hver er ekki til í smá íslenskt rokkabillí og stuð eins og segir í auglýsingu viðburðar.
Miðar verða seldir við hurð og miðaverð einungis 4.000:-
Fleiri fréttir
-
Fagnaði með þeim fréttum að hann væri öklabrotinn
Helgi Freyr Guðmundsson, tíundabekkingur í Grunnskóla Húnaþings vestra, keppti fyrir hönd skólans í Skólahreysti en svo kom til að hann öklabrotnaði í upphitun og gat því ekki keppt í úrslitunum, hann átti að keppa í hraðaþraut. Helgi býr á Enniskoti í Húnaþingi vestra með mömmu sinni Þóru Björg Kristmundsdóttur ásamt Eggert og tveimur bræðrum þeim Kristjáni og Arnari. Pabbi hans, Guðmundur Helgi Gíslason býr á Sauðárkróki ásamt Írisi Elefsen og bræðrum Helga, Sigurði og Hilmari. Hann keppti í fyrsta skipti í Skólahreysti í ár, en hvað er betra en að enda á toppnum? Feykir hafði samband við Helga og fékk hann til þess að segja frá Skólahreysti upplifuninni sinni.Meira -
Matarmikil súpa og kartöfluterta | Matgæðingur Feykis
Matgæðingur í þriðja tbl. Feykis á þessu fallega ári var Kristey Rut Konráðsdóttir. Kristey er fædd og uppalin á Sauðárkróki og vinnur sem stuðningsfulltrúi í 5. bekk í Árskóla. Einnig sækir hún fjarnám í HÍ þennan veturinn í farsæld barna og er með BS í sálfræði. Kristey þekkja eflaust margir eftir að hafa farið á leiksýningar í Bifröst en hún hefur verið viðriðin Leikfélagi Sauðárkróks síðustu árin og situr í varastjórn LS eins og staðan er í dag.Meira -
Maturinn, vínið, sagan og sólin eru alveg dásamleg
Síðast heimsótti Dagur í lífi brottfluttra hana Þórunni Ingu úr Víðidalnum sem býr með fjölskyldu sinni í Dúbaí. Við höldum okkur á heitum slóðum og tökum flugið frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum og beinustu leið til Barselóna í Katalóníu á Spáni. Þar býr Króksarinn Sóley Björk Guðmundsdóttir, þjóðfræðingur og vínfræðingur, ásamt kærastanum sínum, Enric Quirant Campas, sem er lögfræðingur. Við komum ekki að tómum kofanum hjá Sóleyju og frásagnargleðin í góðu lagi.Meira -
„Það er klárlega meiri stemning í úrslitunum" sagði Jóhanna um úrslitin í Skólahreysti
Jóhanna Guðrún Jóhannsdóttir er dóttir þeirra Jóhanns Ragnarssonar og Jónu Guðrúnar Ármannsdóttur og hún er frá bænum Laxárdal í Hrútafirði. Jóhanna er hins vegar líka sigurvegari en hún vann Skólahreysti með liði Grunnskóla Húnaþings vestra í maí sl. Líkt og tvö af hennar fimm systkinum keppti hún fyrir skólann. Jóhanna keppti í armbeygjum og hreyrstigreip sem hún gerði vel. Feykir hafði samband við Jóhönnu og fékk hana í stutt spjall.Meira -
Stórasta stjarnan | Leiðari 22. tölublaðs Feykis
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 12.06.2026 kl. 19.09 oli@feykir.isÞað var víða mikil gleði um liðna helgi enda sjómannadagur og Prjónagleði og ég veit ekki hvað. Þá var mikil gleði í tilefni af því að Bubbi Morthens varð sjötugur og því tilefni til stórtónleika.Meira
