Nemendur Höfðaskóla heimsóttu FNV

Starfskynning og kennsla í FNV. SAMSETT MYND AF SÍÐU HÖFÐASKÓLA
Starfskynning og kennsla í FNV. SAMSETT MYND AF SÍÐU HÖFÐASKÓLA

Á heimasíðu Höfðaskóla á Skagaströnd er sagt frá því að nemendur unglingastigs hafa tvö undanfarin ár verið með tvær list- og verkgreinavikur yfir skólaárið. Þar hafa nemendur kynnst ýmsum greinum sem hægt hefur verið að sýna og kenna innan skólans. Að þessu sinni var hinsvegar ákvðið að leita í hús til Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra um samstarf .

Tekið var vel í beiðni Höfðaskóla og varð úr að nemendur skólans fóru í tveggja daga námsferð í FNV á Sauðárkrók.

Í frétt á síðu Höfðaskóla segir: „Miðvikudaginn 7. desember hélt hópurinn af stað árla morguns ásamt umsjónarkennurum yfir á Sauðárkrók. Þar tóku Karítas umsjónarmaður FabLab og Hrannar og Óskar kennarar í tréiðnadeild á móti okkur. Unglingarnir unnu í 2 hópum að smíðaverkefnum, lærðu að vinna myndir í InkScape fyrir laserskera og límmiðaskurð, myndirnar voru síðan þrykktar á boli og afraksturinn varð ansi fjölbreyttur. Það var þreyttur hópur sem kom heim seinni part dagsins. Á fimmtudagsmorgni 8. desember var aftur haldið af stað og á móti okkur tóku Garðar í rafiðnadeildinni og Geir og Jónatan í málmsmíðadeildinni. Nemendur fengu að prófa að rafsjóða, vinna með plötuskurð og sum fengu að prófa að sandblása. Einnig voru fjöltengi fjöldaframleidd í rafiðnaðardeildinni, ásamt því að öll fengu að prófa að lóða annað hvort ljósabretti eða koparvír.

Nemendur okkar stóðu sig með prýði og fengu mikið hrós frá starfsfólki FNV og mötuneytisins fyrir kurteisi og prúða framkomu.“

Að lokum þakkar Höfðaskóli FNV fyrir góðar móttökur og vonast er til þess að framhald verði á samstarfinu. Helling af myndum frá heimsókninni má finna hér >

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir