Lífshlaupið – landskeppni í hreyfingu hefst í dag

Hið árlega heilsu- og hvatningarverkefni Ólympíusambands Íslands, Lífshlaupið, hefst í dag, . febrúar 2023, og stendur til 21. febrúar. Lífshlaupið höfðar til allra aldurshópa. Í Lífshlaupinu eru landsmenn allir hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, vinnu, í skóla og við val á ferðamáta.

Í ráðleggingum frá Embætti landlæknis um hreyfingu er börnum og unglingum ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag. Nánari upplýsingar um ráðleggingar um hreyfingu má finna á síðu Embætti landlæknis.

Lífshlaupið stendur fyrir:
- Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur í febrúar
- Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur í febrúar
- Vinnustaðakeppni í þrjár vikur í febrúar
- Einstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið

Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.

Skráningarferlið er einfalt og þægilegt en fínar leiðbeiningar má finna hér

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir