Rafmagnslaust frá Hvammstanga að Torfustöðum og frá Reykjaskóla að Laugabakka
Í gærkvöldi og nótt voru truflanir á kerfi RARIK út frá Hrútatungu og Laxárvatni og er nú rafmagnslaust á svæðinu frá Hvammstanga að Torfustöðum og frá Reykjaskóla að Laugabakka. Bilanaleit hefur staðið yfir í alla nótt og stendur enn.
Á heimasíðu RARIK eru notendur sem tengdir eru varaafli beðnir um að spara rafmagn eins og kostur er. „Nú er atvinnulífið á Dalvík að fara í fullan gang og óskað er eftir að fólk fari sparlega með rafmagn frá kl. 6-18 til að draga úr líkum á óæskilegum truflunum‚ í því skyni er rétt að nota t.d. ekki þvottavélar, þurrkara, eldavélar, bakaraofna og önnur tæki sem nota mikið rafmagn,“ segir á rarik.is.
Mikið er um rafmagnstruflanir og bilanir á Norðurlandi eystra samkvæmt stöðuuppfærsla RARIK kl. 8:20 í morgun.
Norðausturhornið:
Enn eru keyrðar varaaflsvélar á Raufarhöfn, Þórshöfn og Bakkafirði. Allir á þessu svæði eru með rafmagn. Viðgerð er lokið á línu í Þistilfirði.
Þingeyjarsveit:
Bilun er í Reykjadal, en allir eru með rafmagn.
Fnjóskadalur:
Einhverjar bilanir en þeir sem þurfa hafa varaafl.
Grýtubakkahreppur:
Lína frá Nolli að Sveinbjarnargerði er öll niðri og varaafl er keyrt þar sem þörf er á.
Árskógssandur:
Vegna bilunar á Dalvíkurlínu er rafmagn nú tekið frá Rangárvöllum sem veldur lágri spennu og lélegum spennugæðum.
Hrísey:
Keyrt er á varaafli vegna bilunar á Dalvíkurlínu.
Svarfaðardalur:
Allur Svarfaðardalur er kominn með rafmagn fyrir utan þrjár spennistöðvar þar sem ekki er föst búseta. Keyrt er á varaafli frá Dalvík.
33 kV lína frá Dalvík til Árskógsands:
Línan er slitin og mikið sliguð. Mikill halli er á staurum. Viðgerð er hafin á línunni.
Dalvík:
Búið er að tengja tiltækt varaafl á Dalvík. Varðskipið Þór er að framleiða fyrir alla almenna notkun. Viðgerð er hafin á Ólafsfjarðarlínu.
Siglufjörður/Ólafsfjörður:
Komið er rafmagn frá Skeiðsfossvirkjun, allir almennir notendur með rafmagn.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.