Ágúst á ferðinni - Tónleikar á Skagaströnd

27. maí kl. 18:00-19:00 Hvað er að gerast Félagsheimið Fellsborg, Skagaströnd
27 maí

Í sumar er ég með tónleikaferðalag um Ísland undir heitinu Ágúst á ferðinni, og þann 27.maí verð ég á Skagaströnd í boði minningarsjóðsins um hjónin frá Garði og Vindhæli.
Með nýútgefinni plötu ásamt því að vera nýr brekkusöngvari Þjóðhátíðar í Eyjum, langar mig að nýta tækifærið og halda tónlistardag fyrir bæjarfélög víðsvegar um landið, ásamt hljómsveit.
Og þann 27.maí ætla ég yfir daginn að kíkja með gítarinn á nokkra vel valda staði á Skagaströnd , og svo klukkan 18:00 verða fjölskyldutónleikar með hljómsveit og verður frítt inn í boði minningarsjóðsins um hjónin frá Garði og Vindhæli
Tónleikarnir verða í Félagsheimilinu Fellsborg og eru um 60 mínútur, og því hentugt fyrir allan aldur. Þar ætla ég að flytja í bland eigið efni ásamt barna og brekkusöngs lögum fyrir alla til að syngja með.
Hlakka rosalega mikið til að koma á Skagaströnd og ég sé ykkur vonandi sem flest
Sjáumst!
Ágúst Brynjarsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.