Bókakynning: Ég kom til að gráta & Litli Kristur eftir Þorgrím Þráinsson

8. desember kl. 17:00-18:00 Hvað er að gerast Safnahúsið við Faxatorg
8 des

Rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson í heimsókn í Safnahúsinu þriðjudaginn 8. desember kl. 17:00.

Þorgrímur Þráinsson er einn ástsælasti rithöfundur þjóð­ar­innar sem hefur á löngum ferli snert lesendur með bókum sínum. Ég kom til að gráta er áhrifamikil saga, skrifuð af einstöku næmi, einlægni og hárfínum húmor.

Hvaða afleiðingar hafa áföll í æsku, brotin sjálfsmynd, brest­ir í hjónabandi? Eða óttinn við að horfast í augu við sjálfan sig? Við erum öll að glíma við eitthvað, leita jafnvægis, eins og Jónatan sem fer á Snæfellsnes til að biðjast fyrirgefningar og skrifa sig frá erfiðum æskuárum.

Fyrir vestan kynnist hann áhugaverðu fólki sem hristir hressilega upp í honum og löngu týndar tilfinningar blossa upp að nýju. Þarf hugrekki til að vera ástfanginn af lífinu?

Þorgrímur mun einnig segja frá nýrri barnabók sinni, Litli kristur.

Á ískaldri jólanótt finnst óttasleginn drengur einn og yfirgefinn á Laugavegi. Hann veit ekki hver hann er, hvaðan hann kom eða hvert hann er að fara. Enginn leitar hans. Enginn kannast við hann. Á spítalanum kemur í ljós að hann er með blátt blóð og í augum hans blasir himingeimurinn við. María og Jósep taka hann inn á heimili sitt þar sem stelpuskottan Dí vill ráðskast með hann og ákveður samstundis að hann sé bróðir hennar. Krakkarnir í skólanum laðast að honum því í honum býr einstök góðvild og hlýja. Svo virðist hann vita allt. Líka það sem gerist í framtíðinni.

Drengurinn þráir ekkert heitar en að finna foreldra sína en hið óvænta bíður hans handan við hornið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.