Bjóðum við þeim með? | Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Álfhildur Leifsdóttir. MYND: GG
Álfhildur Leifsdóttir. MYND: GG

Í samfélagsumræðunni er gjarna rætt um mikilvægi þess að fólk sem flytur til Íslands læri tungumálið, aðlagist samfélaginu og taki virkan þátt. En sem samfélag mættum við horfa aðeins í eigin barm og spyrja: hvað gerum við til þess að öll upplifi að þau tilheyri samfélaginu okkar?

Ég hef verið svo heppin að kenna íslensku við Farskóla Norðurlands vestra og fá að kynnast fólki sem hefur sest hér að og lagt ótrúlega mikið á sig til að ná tökum á þessu blessaða tungumáli okkar, sem seint verður talið einfalt. Margir mæta í íslenskunámið beint úr vinnu og sumir eru á leið í aðra vinnu eftir kennslu. Þau mæta þreytt en mæta samt til að læra þetta snúna tungumál og það þykir mér dugnaður. Bakgrunnur hvers nemanda er áhugaverður en við gefum okkur ekki endilega tíma til að kynnast þeim mannauð sem þar býr. Þetta er fólk með menntun, reynslu og hæfileika sem við vitum ekki endilega af þegar þau standa við færibandið, vinna í umönnun, þrifum, þjónustu eða öðrum störfum þar sem samfélagið okkar gæti illa verið án krafta þeirra. Oft eru þau með menntun sem ekki er metin að verðleikum hér.

Umræðan um fólk af erlendum uppruna er oft furðulega einsleit. Heilu hóparnir eru settir undir sama hatt og jafnvel er talað um innflytjendur líkt og þurfalinga sem kosta samfélagið stórskilding. Tölfræðin sýnir hins vegar að atvinnuþátttaka þeirra er meiri en Íslendinga. Þetta er fólk sem almennt mætir til vinnu, greiðir skatta, elur upp börnin sín, kaupir vörur og þjónustu og heldur fyrirtækjum og samfélögum gangandi. Íslenskukennsla skiptir þarna lykilmáli. Sum fyrirtæki styðja starfsfólk sitt til náms, meðal annars með því að greiða því laun á meðan þau sækja íslenskutíma hjá Farskólanum. Fisk Seafood hefur verið til fyrirmyndar hvað þetta varðar og hlaut Byggðagleraugu SSNV á síðasta ári fyrir framlag sitt til inngildingar, sem ætti að vera til eftirbreytni. Fyrirtæki sem leggja áherslu á stuðning við íslenskunám finna mun á vinnustaðamenningunni þegar samskipti verða auðveldari og skilningur á tungumálinu eykst.

En tungumálið er aðeins hluti af inngildingunni, við getum kennt fólki íslensku en samt ekki boðið því inn í samfélagið. Ef enginn býður manni með á þorrablót, í saumaklúbbinn, kvenfélagið, körfuna eða bumbuboltann er erfitt að upplifa sig tilheyra, sama hversu mörg íslenskunámskeið maður hefur setið. Inngilding er nefnilega ekki verkefni þeirra sem flytja hingað, hún er verkefni okkar allra. Við í litlu samfélögunum á Norðurlandi vestra þurfum á fleira fólki að halda og við erum ríkari vegna fólksins sem hér býr, sama hvaðan það kemur. En líklega þurfum við að fjölga tækifærunum til að öll upplifi sig tilheyra. Inngilding byrjar nefnilega ekki hjá þeim sem hingað koma, hún byrjar hjá okkur sem erum hér fyrir.

Álfhildur Leifsdóttir
kennari

- - - -
Textinn birtist sem gestaleiðari í 43. tölublaði Feykis 2026

Fleiri fréttir