Aðalfundur Sögufélags Skagfirðinga
Aðalfundur Sögufélags Skagfirðinga fyrir árið 2025, var haldinn í Safnahúsinu á Sauðárkróki föstudaginn 20. nóvember síðastliðinn. Í skýrslu formanns kom fram að gefnar hefðu verið út tvær bækur á árinu. 45. hefti Skagfirðingabókar hafði komið út í apríllok og var bókinni dreift til áskrifenda í byrjun maí. Hún var að vanda einkar vel úr garði gerð, 208 blaðsíður, spjaldbundin og litprentuð á vandaðan pappír með rúmlega 120 ljósmyndum.
Í henni voru að þessu sinni 12 greinar en aðalgreinin var um Eystein Jóhannsson í Stokkhólma sem Sigtryggur Björnsson frá Framnesi hafði tekið saman. Bókin var prentuð í 1.100 eintökum en áskrifendur eru vel yfir 800 talsins.
Í nóvember kom svo út 10. bindi af Skagfirskum æviskrám, rúmlega 400 blaðsíðna bók með samtals 87 æviskrárþáttum rúmlega 160 einstaklinga, fólks sem hélt heimili í Skagafirði einhvern tíma á árunum 1910-1950, og ljósmyndir af flestum þeirra.
Þann 12. október 2025 gekkst Sögufélagið, ásamt Héraðsbókasafninu, fyrir málþingi í Miðgarði í tilefni þess að 70 ár voru liðin frá útkomu Kvæðabókar, fyrstu ljóðabókar Hannesar Péturssonar. Eyþór Árnason frá Uppsölum stjórnaði málþinginu þar sem fjórir fluttu erindi, margir tóku þátt í ljóðaupplestri og sönglög voru flutt. Nokkuð á annað hundrað manns sóttu málþingið, þar sem dagskráin var tekin upp og flutt í ríkisútvarpinu síðar á árinu.
Kári Sveinsson las og skýrði reikninga. Þar kom fram að rekstrartekjur félagsins hefðu verið tæpar 8 milljónir og hagnaður um 265.000 krónur.
Næsta Skagfirðingabók, númer 46 í röðinni, er nú í setningu og er áætlað að hún komi út í apríl á næsta ári. Nýtt bindi af æviskrám er einnig í vinnslu og væntanlegt í vetrarbyrjun 2027.
Að lokum kynnti formaður tvö smáprent sem félagið gefur út um þessar mundir, þó aðeins í 100 eintökum hvort um sig og verða þau ekki til almennnrar sölu. Tveir heiðursfélagar Sögufélagsins eru nú á lífi. Sigurjón Björnsson sem átti 100 ára afmæli 25. nóvember og Hannes Pétursson verður 95 ára þann 14. desember 2026. Smáritin eru gerð þeim til heiðurs. Heitir annað Jón Steingrímsson vinnumaður en hitt Móðuharðindin í Skagafirði.
