Virkjum Vötnin! | Jódís Helga Káradóttir skrifar

Jódís Helga Káradóttir. MYND AÐSEND
Jódís Helga Káradóttir. MYND AÐSEND

Raforka er ekki aðeins forsenda iðnaðar og atvinnustarfsemi, heldur ein af undirstöðum hagvaxtar, byggðafestu og þjóðaröryggis. Í ljósi þess tel ég tímabært að taka virkjun Héraðsvatna til alvarlegrar umræðu á ný. Áformin eiga sér áratugalanga sögu, en aukin raforkuþörf, orkuskipti og vaxandi kröfur um afhendingaröryggi hafa breytt forsendum umræðunnar. Því er ástæða til að spyrja hvort við höfum efni á því að láta þau tækifæri sem felast í orkuauðlindum okkar liggja ónýtt.

Á fundi skipulagsnefndar 12. nóvember sl. vakti ég athygli á virkjanakostum Héraðsvatna. Markmiðið var fyrst og fremst að hefja upplýsta og málefnalega umræðu innan sveitarfélagsins um framtíð þessara mikilvægu náttúruauðlinda og þá hagsmuni sem eru í húfi

Í nýlegri greiningu Viðskiptaráðs Íslands kemur fram að raforkuframleiðsla landsins hafi numið 18,8 teravattstundum árið 2025. Ráðið hefur lagt til að framleiðslan verði aukin í 43 teravattstundir fyrir árið 2040. Slík uppbygging kallar vissulega á umfangsmiklar fjárfestingar, en felur jafnframt í sér tækifæri til aukinnar verðmætasköpunar, fjölbreyttari atvinnustarfsemi og styrkingar íslensks efnahagslífs.

Á vatnasviði Héraðsvatna eru fjórir virkjunarkostir í biðflokki rammaáætlunar. Þar á meðal er Skatastaðavirkjun C, en áætluð árleg orkuvinnsla hennar nemur um 1.090 gígavattstundum, sem samsvarar tæplega 6% af raforkuframleiðslu Íslands árið 2025. Hér er því um umtalsverða orkuauðlind að ræða, sem vert er að rannsaka og meta til hlítar með framtíðarnýtingu að markmiði.

Orkuöryggi er jafnframt þjóðaröryggismál. Heilbrigðisþjónusta, fjarskipti, matvælaframleiðsla og atvinnulíf byggjast á öruggri og stöðugri afhendingu raforku. Landfræðileg dreifing orkuframleiðslu getur styrkt viðnámsþrótt raforkukerfisins, enda sé samhliða hugað að uppbyggingu flutningsmannvirkja, meðal annars gagnvart náttúruvá á við eldsumbrot. Við mat á framtíð Héraðsvatna ber því ekki aðeins að horfa til aukinnar orkuframleiðslu, heldur einnig til afhendingaröryggis, byggðasjónarmiða og þeirra þjóðhagslegu hagsmuna sem í húfi eru.

Sem Skagfirðingur tel ég þó ekki síður mikilvægt að beina sjónum að þeim tækifærum sem nýting Héraðsvatna gæti skapað hér í héraði. Byggðastefna á ekki einvörðungu að snúast um að varðveita það sem fyrir er, heldur jafnframt að greiða götu nýrrar atvinnustarfsemi, fjölbreyttra starfa og aukinnar verðmætasköpunar. Virkjun ein og sér tryggir ekki slíka þróun, en hún getur skapað forsendur fyrir henni. Því skiptir miklu máli að hagsmunir heimamanna séu hafðir að leiðarljósi og að Skagfirðingar njóti ávinnings af nýtingu þeirra auðlinda sem héraðið býr yfir.

Héraðsvötn hafa um aldir mótað landslag, búsetu og atvinnulíf í Skagafirði. Þau eru í senn verðmæt náttúruauðlind og afl sem getur ógnað byggð, ræktarlöndum og búskap þegar stórflóð verða. Við mat á virkjunarkostum ber því að líta heildstætt til áhrifa á náttúrufar, landbúnað og samfélag. Jafnframt tel ég ástæðu til að kanna hvort vatnsmiðlun geti stuðlað að bættri flóðastýringu og auknu öryggi á láglendi héraðsins.

Ákvarðanir um framtíð Skagafjarðar mega ekki byggjast á sjónarmiðum miðlægrar stjórnsýslu og sérfræðinga einna saman. Þekking heimamanna, reynsla bænda, hagsmunir atvinnulífs og íbúa verða að vega þungt þegar framtíðarnýting auðlinda héraðsins er ákveðin. Jafnframt er nauðsynlegt að byggja ákvarðanir á vönduðum rannsóknum, þar sem efnahagslegir, samfélagslegir og umhverfislegir þættir eru metnir í samhengi.

Ég tel að sveitarfélagið Skagafjörður eigi að hafa skýra og framsýna stefnu um nýtingu orkuauðlinda sinna. Í því felst meðal annars að beita sér fyrir endurmati á virkjunarkostum Héraðsvatna, móta viðeigandi stefnu í skipulagsmálum og koma sjónarmiðum sveitarfélagsins með skýrum hætti á framfæri við stjórnvöld og Alþingi. Framtíð þessa máls á ekki að ráðast af áratugagömlum ágreiningi, heldur af þeim tækifærum, rannsóknum og hagsmunum sem við blasa í dag.

Ég vil sjá Skagafjörð þar sem ungt fólk þarf ekki að velja á milli átthaganna og tækifæranna. Hérað þar sem atvinnulíf fær forsendur til vaxtar, nýsköpun dafnar og auðlindir eru nýttar af framsýni og ábyrgð. Við eigum ekki einungis að varðveita þau verðmæti sem fyrri kynslóðir hafa skapað, heldur einnig að leggja grunn að þeim tækifærum sem komandi kynslóðir munu njóta.

Jódís Helga Káradóttir
Fulltrúi í skipulagsnefnd Skagafjarðar

Fleiri fréttir