Fræðsluerindi um Bólu-Hjálmar

10. ágúst kl. 15:00-16:00 Hvað er að gerast Byggðasafn Skagfirðinga
10 ágú
Halldór Júlíusson, tréskeri og áhugamaður um tréskurð Hjálmars flytur erindi um Bólu-Hjálmar.
 
Hjálmar Jónsson (1796−1875), Bólu-Hjálmar, er fyrst og fremst þekktur fyrir kveðskap sinn. Hjálmar var þó einnig afkastamikill tréskeri. Í kynningu sinni leitast Halldór við að gera grein fyrir tréskeranum Hjálmari Jónssyni. Hvað skar Hjálmar út? Hvernig skar hann út? Og hvenær skar hann út?
 
Einnig mun Halldór gera grein fyrir höfðaletri Hjálmars sem er um margt einstakt.
 
Athugið að takmarkaður fjöldi sæta er í boði og því þarf að skrá sig til að fá sæti, skráning fer fram hér: Skráning á erindi um Bólu-Hjálmar
 
Aðgangur að erindinu er ókeypis en greiða þarf aðgangseyri inn á safnsvæðið.
 
Við minnum á ársmiðana þar sem íbúar héraðsins þurfa einungis að greiða aðgangseyri einu sinni og fá þá miða sem gildir í heilt ár frá kaupum og geta í kjölfarið komið hvenær sem er og eins oft og þeir vilja þeim að kostnaðarlausu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.