Hin árlega messa í Ábæjarkirkju í Austurdal

2. ágúst kl. 14:00-15:00 Hvað er að gerast Ábæjarkirkja í Austurdal
2 ágú

Löng hefð er fyrir að messa í Ábæjarkirkju í Austurdal á sunnudegi í verslunarmannahelgi.

Sr. Karl V. Matthíasson þjónar og prédikar, Vorvindar glaðir leiða söng undir stjórn Friðriks Þórs Jónssonar. Fólk er hvatt til að taka með sér nesti og eiga saman stund eftir guðsþjónustuna og njóta einstakrar náttúrufegurðar Austurdals.

Nauðsynlegt er að ætla sér rúman tíma til fararinnar því vegurinn er seinfarinn og hentar best jeppum eða fjórhjóladrifnum fólksbílum. Einnig er lag að ríða til kirkju eða koma gangandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.