Hrekkjavaka í Glaumbæ
31. október kl. 18:00-21:00
Hvað er að gerast
Glaumbær
31
okt
Kíkið í Glaumbæ föstudaginn 31. október kl. 18–21 til að upplifa hrekkjavökustemningu og heyra íslenskar draugasögur!
Sýningarnar í gamla bænum taka á sig skuggalega mynd og Miklabæjar-Sólveig og fleiri fara á stjá…
Í baðstofunni verða draugasögur og fróðleikur um gömul hindurvitni og uppruna hrekkjavökunnar.
Í baðstofunni verða draugasögur og fróðleikur um gömul hindurvitni og uppruna hrekkjavökunnar.
Í Áshúsi verður vinnustofa fyrir yngri kynslóðina þar sem hægt verður að skera út grasker og rófur. Einnig verður mögulegt að kaupa léttar veitingar.
Börn 12 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum og það gæti verið betra fyrir viðkvæmar sálir á öllum aldri að hafa fylgdarfólk sér til halds og trausts.
Ókeypis aðgangur fyrir börn undir 18 ára og fullorðna í búningum!
Endilega skráið ykkur á viðburðinn á Facebook: https://fb.me/e/8iCnvgPSi
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.