„Dett af og til í rosalegan Herra Hnetusmjörs fíling“ / ATLI DAGUR

Atli Dagur að trúbbast. AÐSEND MYND
Atli Dagur að trúbbast. AÐSEND MYND

Að þessu sinni er það Atli Dagur Stefánsson sem segir okkur frá tón-lystinni sinni. Atli er tvítugur, hóf ævi sína í Reykjavík en flutti á Krókinn 8 ára gamall. Hann er sonur Hrafnhildar og Stefáns Vagns, og hefur því hlustað talsvert á tónlist undir eftirliti lögreglunnar (djók). Atli hefur verið syngjandi frá því elstu menn muna og hefur síðustu misserin verið að trúbbast.

Auk þess að syngja spilar Atli á gítar og spurður út í helstu afrekin á tónlistarsviðinu segir hann: „Það er sennilega það þegar mér tókst að fá bókstsflega alla til að syngja með Valla Reynis á Kaffi Krók. Aldrei upplifað aðra eins stemmingu.“

Hvaða lag varstu að hlusta á? One eftir Ed Sheeran.

Uppáhalds tónlistartímabil? Árin 2010-12 þegar Ed Sheeran var að dæla út fyrstu lögunum sínum. Fyrsta sinn sem ég fór að pæla almennilega í tónlist. Þá söng ég sko með.

Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Rosalega misjafnt, dett af og til í rosalegan Herra hnetusmjörs fíling. En oftast er það samt bara eitthvað ljúft og notalegt eftir annaðhvort Lewis Capaldi eða Ed Sheeran.

Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Það var ekki mikil tónlistarmenning á heimilinu þegar ég var að alast upp. Áttum samt stærðarinnar safn af geisladiskum og ég fékk að fikta aðeins í því. Fann svo geisladiskinn 1973 eftir James Blunt. Eftir það þá var það eini diskurinn sem var spilaður heima.

Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? The Gaijan Mind eftir tónlistarmanninn og góðan vin minn Helga Frey (Hewkii). Ég hef aldrei verið mikið fyrir það að kaupa plötur en ég gerði undantekningu til þess að styrkja félaga minn.

Hvaða græjur varstu þá með? Þá hef ég sennilega bara verið með fartölvuna mína, þetta skeði heldur nýlega, öll tónlist sem ég hlusta á í dag er í gegnum Spotify eða YouTube. Þó finnst mér ekki langt síðan ég fann lög á netinu til þess að hlaða á iPodinn minn

Hvað var fyrsta lagið sem þú manst eftir að hafa fílað í botn? Carry You Home með James Blunt. Það er af plötunni 1973 sem ég hlustaði svo mikið á þegar ég var lítill. Fyrsta lagið sem ég lærði utanbókar og fyrsta lagið sem fólk nennti að heyra mig syngja.

Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? I like it like that með Cardi B – þoli það ekki!

Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Valli Reynis með Ingó Veðurguð. Þetta er lag augnabliksins og akkúrat það sen þú spilar til að skapa dúndurstemmingu

Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? Gravity með John Mayer. Með fallegustu lögum sem hafa verið gerð og fullkomið til að byrja daginn. Þetta lag er hringitónninn minn.

Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Ég færi til Spánar á John Mayer tónleika. Myndi taka vin minn hann Hauk Sindra með, hann benti mér á plötuna Continuum sem eg hef hlustað óteljandi oft á. Undir venjulegum kringumstæðum myndi ég fara á Ed Sheeran en ég fór, eins og stór hluti þjóðarinnar, á tónleika hans hérlendis og vel því frekar John Mayer, því ég á hann eftir.

Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkominn með bílpróf? Það hefur verið Hringd’í mig með Frikka Dór. Það var nýkomið út á þeim tíma.

Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? Klárlega Ed Sheeran. Hann nær öllum í svo mikinn fíling þegar hann kemur fram og semur fallegri lög en nokkur annar.

Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út eða sú sem skiptir þig mestu máli? Continuum eftir John mayer. Ótrúlega vel samin lögin á þeirri plötu.

Vinsælustu lögin á Playlistanum:
Gravity / John Mayer
One / Ed sheeran
Someone You Loved / Lewis Capaldi
You Need Me I Don’t Need You  / Ed Sheeran
Slow Dancing in a Burning Room / John Mayer
Forever / Lewis Capaldi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir