Hvernig búum við til samfélag? Hvað er samfélag? Auðvitað er þetta flókið samspil margra þátta, og hugtakið sjálft er notað á ýmsa vegu. Við tölum um alls konar samfélög þvert á hið stóra samfélag allra íbúa. Við tölum td um skólasamfélagið og íþróttasamfélagið, og eigum þá oftast við hóp fólks sem kemur að þessum geira, t.d. nemendur., kennara, stoðkerfið, foreldra osfrv. En stundum tölum við um bændasamfélagið, og þá er gjarnan átt við alla, ekki bara þá sem starfa í landbúnaði, og þá erum við að nota þetta hugtak til að lýsa einhverju samhengi milli menningar, atvinnu og búsetu.
Aðalfundur Sögufélags Skagfirðinga fyrir árið 2025, var haldinn í Safnahúsinu á Sauðárkróki föstudaginn 20. nóvember síðastliðinn. Í skýrslu formanns kom fram að gefnar hefðu verið út tvær bækur á árinu. 45. hefti Skagfirðingabókar hafði komið út í apríllok og var bókinni dreift til áskrifenda í byrjun maí. Hún var að vanda einkar vel úr garði gerð, 208 blaðsíður, spjaldbundin og litprentuð á vandaðan pappír með rúmlega 120 ljósmyndum.
Raforka er ekki aðeins forsenda iðnaðar og atvinnustarfsemi, heldur ein af undirstöðum hagvaxtar, byggðafestu og þjóðaröryggis. Í ljósi þess tel ég tímabært að taka virkjun Héraðsvatna til alvarlegrar umræðu á ný. Áformin eiga sér áratugalanga sögu, en aukin raforkuþörf, orkuskipti og vaxandi kröfur um afhendingaröryggi hafa breytt forsendum umræðunnar. Því er ástæða til að spyrja hvort við höfum efni á því að láta þau tækifæri sem felast í orkuauðlindum okkar liggja ónýtt.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Það þarf ekki að kynna Geirmund Valtýsson fyrir neinum. Það kannast allir við sveiflukónginn skagfirska og sennilega langflestir lesendur Feykis sem hafa verið á balli með Hljómsveit Geirmundar, tjúttað, trallað og jafnvel tekið fyrsta vangadansinn undir tónum Geira og félaga. Það er að sjálfsögðu löngu kominn tími til að Geiri svari Tón-lystinni í Feyki og ekki þótti síðra að fá hann til að svara Jóla-Tón-lystinni. Og það er augljóst hverjir voru helstu áhrifavaldar Geira í tónlistinni. „Bítlarnir náttúrulega átu mann upp, Paul McCartney, eins og hann gerir ennþá reyndar,“ segir hann léttur...
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.