Jólamarkaður Rúnalistar og Kaffihúsið Starrastöðum

21. nóvember kl. 12:00-18:00 Hvað er að gerast Stórhóll og Starrastaðir í Lýtingsstaðahrepp
21 nóv
Okkar árlegi jóla, bænda og handverksmarkaður í Hlöðunni á Stórhól og Rúnalist Gallerí. Fjölbreytt vöruúrval beint frá býli og smáframleiðendum á Norðurlandi og víðar.
Söluaðilar:
Austan Vatna, Áskaffi gó ðgæti, Birkihlíð kjötvinnsla, Böggvisbrauð, Einar Ernir, Geitagott, Háafell, Hraun á Skaga, Huldubúð, Hvammshlíð, Korg, Liljugaldur, Sveifla, Sölvanes
Tíundi bekkur Varmahlíðarskóla sem verður með veglegan kökubasar til fjáröflunar fyrir skólaferðalag til Danmerkur.
Það verða geitaostar, ostar, pylsur, sultur, chutney, grafið, reykt, geitakjöt, lambakjöt, nautakjöt, kæfa, ærgæti, kaffi, brauð og kökur, te, skinn, skart, bækur, kerti og spil, húfur, vettlingar, sokkar, eldiviður, gjafakörfur og margt margt fleira.
Einnig verður í boði,jólate, jólaglögg, piparkökur og að grilla sykurpúða.
 
Kaffihúsið Starrastöðum býður uppá heitt kakaó með rjóma, kleinur, pizzusnúða, elpaköku, marens og fl. góðgæti.
Smakk á rósaafurðum og gjafapakkningar.
Nýskornar rósir í úrvali

 

 
 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.