Við höfum fulla ástæðu til bjartsýni | Guðmundur Haukur Jakbosson skrifar

Guðmundur Haukur Jakobsson forseti sveitarstjórnar í Húnabyggð. MYND AÐSEND
Guðmundur Haukur Jakobsson forseti sveitarstjórnar í Húnabyggð. MYND AÐSEND

Það er eðlilegt að fólk spyrji hvernig gangi með fyrirhugaða uppbyggingu Dranga á Blönduósi. Hér kemur því smá stöðuuppfærsla. Við höfum fundað nokkuð reglulega með forsvarsmönnum Dranga og verkefnið er í hönnun. Þegar hefur verið varið milljónum í þá vinnu og áhuginn á uppbyggingunni er áfram mikill. Drangar hafa ekki fengið „kalda fætur“ – síður en svo.

Þegar verkefnið var kynnt var vonast til að framkvæmdir hæfust um mitt ár 2026. Sú tímasetning hefur ekki gengið eftir. Teiknivinna og hönnun hafa tekið tíma en vonir standa til að þeirri vinnu fari nú að ljúka. Þetta er stór framkvæmd, mögulega allt að tveggja milljarða króna fjárfesting, og fjármögnun hennar þarf að tryggja. Það er því ekki tímabært að gefa upp nýja dagsetningu um upphaf framkvæmda.

Vegna umræðu um að verkefnið strandi á Vegagerðinni er rétt að taka fram að hún er tilbúin til samstarfs. Hönnun lóðarinnar hefur verið aðlöguð að ábendingum hennar, meðal annars um vegtengingar. Gert er ráð fyrir að nægt rafmagn og heitt vatn séu til staðar á svæðinu, kalt vatn er við lóðina og vinna þarf að fráveitu.

Að baki þessu verkefni liggur mikil vinna Reynis Grétarssonar og hans fólks hjá InfoCapital, Dranga og sveitarfélagsins. Lágvöruverðsverslun og aukin þjónusta geta bætt hag heimilanna, skapað störf og styrkt atvinnulíf á svæðinu öllu.

Þess vegna skiptir líka máli að skapa festu um framtíðina. Aðalskipulag Húnabyggðar sýnir núverandi vegtengingar og byggir á samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030. Þar er ekki gert ráð fyrir Húnavallaleið.

Hugmyndir um að færa þjóðveginn frá Blönduósi ganga þvert á þá uppbyggingu sem við vinnum að og gætu veikt rekstrargrundvöll þjónustu bæði á Blönduósi og Skagaströnd. Ég hef um árabil átt samskipti við fjárfesta um uppbyggingu í Austur-Húnavatnssýslu og veit af þeim samskiptum að óvissan um Húnavallaleið hefur truflað fjárfestingaráform og jafnvel orðið til þess að hætt hefur verið við verkefni. Við þurfum að standa við þá stefnu sem liggur fyrir og vinna að öruggari og betri vegum sem styðja við byggðina.

Sem sjálfstæðismaður hef ég trú á frumkvæði einstaklinga og fyrirtækja. Hlutverk okkar hjá sveitarfélaginu er að skapa góð skilyrði, vinna með fólki og fylgja málum eftir. Það mun ég áfram gera.

Það er bjart framundan í Húnabyggð. Mikill uppgangur er hjá Borealis, íbúðarhúsnæði er í byggingu og fleiri framkvæmdir framundan. Byggðalínan mun koma í Laxárvatn og nýtast okkar samfélagi. Það er líka sanngjörn krafa að samfélagið sem leggur til land undir orkuframleiðsluna njóti hennar við eigin uppbyggingu.

Við höfum því fulla ástæðu til bjartsýni. Verum jákvæð fyrir framtíðinni, styðjum við það sem verið er að byggja upp og hættum að tala hlutina niður. Við eigum öll hag af því að Húnabyggð gangi vel.

Guðmundur Haukur Jakobsson
forseti sveitarstjórnar í Húnabyggð

- - - - -
Skrifin birtust áður á Facebook-síðu höfundar.

Fleiri fréttir