Hægt að greina smáatriði á jörðu niðri á nýjum loftmyndum af Norðurlandi vestra
Nýjar háupplausnar loftmyndir voru teknar af öllum þéttbýlisstöðum á Norðurlandi vestra síðastliðið sumar. Teknar voru meðal annars myndir af Blönduósi, Sauðárkróki, Skagaströnd og Hvammstanga svo nokkrir staðir séu nefndir. Myndirnar hafa nú verið birtar á kortasjám sveitarfélaganna sem hægt er að nálgast á heimasíðum þeirra og á www.map.is
Í sumar voru allir þéttbýlisstaðir landsins myndaðir sem er í fyrsta skipti sem það er gert. Þá voru teknar háupplausnarmyndir af vinsælum ferðamannastöðum, eins og Hvítserk og Höfðavatni. Alls voru 110 þéttbýli og vinsælir ferðamannastaðir myndaðir. Á loftmyndunum er hægt að greina smáatriði á jörðu niðri, eitthvað sem áður var ekki hægt. Teknar voru nýjar myndir af tæplega 20% landsins en til að ná myndum þarf að vera heiðskírt sem er alls ekki alla daga.
Í fyrra voru í fyrsta skipti teknar myndir með 5 sentimetra upplausn af öllu höfuðborgarsvæðinu en aðrir þéttbýlisstaðir myndaðir með 10 sentimetra upplausn. Þessi tækni nýtist skipulagsyfirvöldum sem og áhugafólki um landafræði afar vel og þeim sem stunda kortlagningu innviða og rannsóknir.
„Að ná svona háupplausnamyndum af öllum þéttbýlisstöðum er stór áfangi í þróun loftmynda af Íslandi,“ segir Karl Arnar Arnarsson, framkvæmdastjóri Loftmynda ehf. „Kröfurnar eru alltaf að aukast bæði varðandi gæði og örari endurnýjun.“
Þessar nýju og nákvæmu loftmyndir eru nú aðgengilegar á kortasjám sveitarfélaga og á vefnum map.is. Þar getur almenningur skoðað þessar nýju loftmyndir og allar eldri myndir sem Loftmyndir ehf. hafa tekið frá upphafi. „Aðgangurinn er ókeypis og hefur vefurinn reynst mikilvægur vettvangur til að bera saman breytingar á byggð, gróðri og landslagi yfir áratugaskeið,“ segir Karl.
Í kortasjánni er einnig hægt að skoða stafræna skipulagsgrunna auk ýmissar þjónustu eins og afþreyingar, gönguleiða og upplýsinga um snjómokstur, svo dæmi séu nefnd.
Myndirnar líka nýttar í þrívíddarkort
Nýju myndirnar eru líka notaðar til að setja inn þrívíðar myndir á 3d.map.is og Loftmyndir gera að auki ný hæðarlíkön úr myndunum sem einnig eru aðgengileg á 3d.map.is. Karl segir önnur þrívíddarkort gjarnan unnin með gervihnattamyndum en kort Loftmynda séu unnin upp úr myndum teknum úr flugvél í 1-3 km hæð, sem geri nákvæmnina og þéttleikann meiri.
„Ótal landmældir grunnpunktar eru notaðir til að staðfesta hæðir og brotlínur teiknaðar í þrívíðum tölvubúnaði til að draga fram þrengstu gil og skorninga. Gögnin sem hægt er að skoða á 3d.map.is koma úr þessum hæðargrunni og loftmyndirnar eru síðan lagðar ofan á hæðarlíkanið,“ segir Karl. Útkoman sé hágæða landlíkan sem nær yfir allt landið https://3d.map.is/

Allur búnaður íslenskur
Loftmyndir ehf. er eina fyrirtækið á landinu sem á sérhæfðan búnað til að taka loftmyndir af stórum landsvæðum úr flugvél. Fyrirtækið sérhæfir sig í loftmyndatöku, gerð myndkorta og landlíkana og uppsetningu og rekstri vefkorta auk skyldra verkefna.
Allar loftmyndir eru teknar úr flugvél og getur fyrirtækið boðið upp á loftmyndatöku allt árið með stuttum fyrirvara. Frá árinu 1996 hafa Loftmyndir árlega tekið myndir í eigið safn. Í safninu eru nú til myndir af öllu Íslandi og tímaseríur af ýmsum svæðum, þ.m.t. öllum þéttbýlisstöðum.
/fréttatilkynning
