Næstu helgi göngum við til mikilvægustu kosninga frá því að Ísland öðlaðist fullveldi. Við munum greiða atkvæði um hvort taka skuli upp viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu eða með öðrum orðum hvort við sækja eigi um inngöngu í ESB.
Á laugardaginn göngum við að kjörborðinu og svörum spurningunni hvort Ísland eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ég mun segja nei.
Ísland á að eiga náið og gott samstarf við Evrópu. EES samningurinn tryggir okkur aðgang að innri markaðnum og við eigum að halda áfram að nýta þau tækifæri. En ESB aðild er annað og meira. ESB er yfirþjóðlegt samstarf þar sem aðildarríkin fela stofnunum sambandsins mikil völd. Opinber kynning landskjörstjórnar staðfestir raunar að breyta þyrfti íslensku stjórnarskránni vegna þess framsals ríkisvalds sem aðild fæli í sér.
Dagana 20.-22. ágúst fór fram Íslandsmót unglinga í höggleik 14 ára og yngri á Þorláksvelli hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar. Golfklúbbur Skagafjarðar átti fimm glæsilega fulltrúa; Brynjar Morgan Brynjarsson, Sigurbjörn Darra Pétursson og Gunnar Atla Þórðarson sem kepptu í flokki 13-14 ára - og Ólaf Bjarna Þórðarson og Karl Goðdal Þórleifsson í flokki 12 ára og yngri. Strákarnir allir sem einn stóðu sig með prýði og voru klúbbnum til mikils sóma. Það fór svo að Ólafur Bjarni landaði sigri og þar með Íslandsmeistaratitli, sem er ekkert nema stórkostlegur árangur hjá dreng á tólfta aldursári. Þrotlaus vinna og þrautseigja liggur að baki, og uppskeran eftir því.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Sara Rut Fannarsdóttir heitir ung og efnileg tónlistarkona frá Skagaströndinni góðu sem hefur gert garðinn frægan með hljómsveitinni Fúsaleg Helgi þar sem hún var harmonikkuleikari og söng en fyrr á þessu ári fluttist Sara til Hafnafjarðar. Helstu tónlistarafrek fyrir utan að spila í fyrrnefndri hljómsveit þá segist Sara eitt sinn hafa spilað fyrir biskupinn sjálfan. Þá hefur hún verið í lúðrasveit og spilað og sungið hér og þar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.