Pop-up kokteila kvöld í krúttinu!

18. september kl. 19:00-02:00 Hvað er að gerast Hótel Blönduós
18 sep

Við bjóðum upp á einstakt kvöld í Krúttinu á Hótel Blönduósi þar sem margverðlaunuðu barþjónarnir Liv Sunneva Einarsdóttir og Darri Már Magnússon taka yfir barinn og töfra fram gómsæta og spennandi kokteila.
Kvöldið hefst klukkan 19:00, þar sem Liv og Darri verða á staðnum og bjóða upp á úrval af kokteilum sem þau hafa sett saman sérstaklega fyrir kvöldið.
Einn kokteill af seðli er innifalinn í hverjum miða. Að honum loknum verður opinn bar með úrvali af kokteilum og öðrum drykkjum fram eftir kvöldi.
Frá klukkan 20:00 mæta trúbbar af svæðinu og taka við með lifandi tónlist og góðri stemningu út kvöldið.
Komdu og njóttu góðra drykkja, lifandi tónlistar og notalegrar stemningar í Krúttinu á Hótel Blönduósi.
Takmarkað pláss – tryggðu þér miða og vertu með!

Miðar koma í sölu á Tix.is innan skamms.
einnig geturðu tryggt þér miða núna:
699-1200
blonduos@laugarbakki.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.