Ég hugsa oft um hvaða upplifun ferðamenn fara heim með eftir heimsókn til okkar í Skagafjörð. Ferðalög eru í mínum huga það eina sem ég eyði peningum í sem gerir mig ríkari. Ekki af hlutum, heldur af minningum, nýjum sjónarhornum og sögum sem móta mig og hvernig ég hugsa. Hver einasta ferð gefur mér eitthvað sérstakt sem ég fæ hvergi annars staðar keypt fyrir peninga.
Hvernig verður umfjöllun um rekstur sveitarfélags að skemmtilegu lesefni? Jú, það má reyna fjalla um hann á mannamáli. Það sem þú veist væntanlega lesandi góður er að sveitarfélög fá sínar tekjur að mestu leyti beint úr vasa þínum. Það gerist með útsvari sem tekið er beint af launum þínum í formi skatts. Svo er fasteignaskattur, jafnvel lóðarleiga, innheimt af húsinu þínu. Hin ýmsu gjöld greiðir þú líka eins og sorphirðugjöld, leyfisgjöld og jafnvel leikskólagjöld o.fl. Margir greiða líka fyrir vatnið sem þeir nota og svo mætti áfram telja. Ríkið greiðir svo mótframlag í formi Jöfnunarsjóðs, en þeim sjóði er dreift á byggðir landsins.
Aðalfundur félagsins var haldinn 14.apríl við góða mætingu. Stjórnin byrjaði kvöldið á að grilla ofan í félaga og síðan var farið í gegnum hefðbundin aðalfundarstörf. Guðmundur Guðmundsson stjórnarmeðlimur gekk úr stjórn og þökkum við honum fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Nú á dögunum fór fram árleg Söngkeppni NFNV og þar stóð uppi sem sigurvegari Ásbjörn Edgar Waage. Hann er fæddur árið 1999 og alinn upp á Þorgrímsstöðum á Vatnsnesi í Vestur-Húnavatnssýslu. Hann stundur nú nám við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Það þótti við hæft að fá kappann til að svara Tón-lystinni í Feyki.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.