Aðeins sjö landanir sl. viku
Vikuna 25. febrúar til og með 2. mars lönduðu þrír bátar/togarar á Króknum tæpum 239 tonnum í þrem löndunum. Á fisk.is segir að Málmey hafi verið við veiðar á Kögurgrunni og uppistaða aflans hafi verið þorskur og ýsa. Þá var Drangey við veiðar á Kolluáli og Grunnkanti og uppistaða aflans var þorskur, ýsa og karfi.
Á Skagaströnd lönduðu aðeins tveir bátar og var heildaraflinn rúm 12 tonn í fjórum löndunum. Dragnótabáturinn, Hafdís SK 4, var aflahæstur með tæp 11 tonn í þrem löndunum. Enginn landaði á Hvammstanga og Hofsósi og var því heildaraflinn á Norðurlandi vestra 250.823 kg í sjö löndunum.