Aðgát skal höfð við í nærveru sálar

Síðdegis sl. mánudag átti sér stað alvarlegt umferðarslys vestan við Húnaver í Austur-Húnavatnssýslu en þar varð árekstur tveggja vöruflutningabifreiða sem komu úr gagnstæðri átt, sem leiddi til þess að annar ökumanna lést. Að gefnu tilefni vill undirritaður beina því til fjölmiðla og vegfarenda að virða og forðast að trufla störf þeirra sem kallaðir eru til rannsóknar og aðstoðar á slysavettvangi.

Vanda þarf til fréttaflutnings af slysum og öðrum óförum með allri þeirri upptöku- og miðlunartækni sem í boði er nú á tímum. Þeir sem hafa undir höndum fréttaefni um slys og aðrar ófarir þurfa að gæta að tilfinningum og stöðu ættingja og annarra aðstandenda þeirra sem fyrir óhappi verða.

Það er í höndum rannsóknaraðila að tilkynna aðstandendum um alvarleg slys og önnur atvik.  Sátt þarf að ríkja um að veita þeim hæfilegan tíma og rúm til að sinna því hlutverki og hafa samráð við þá um birtingar viðkvæmra upplýsinga.

Bjarni Stefánsson
Lögreglustjóri á Blönduósi.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir