Ævintýri tvíburanna - Ný bók frá Töfrakonum
Töfrakonur/Magic Women ehf hafa sent frá sér nýja barnabók eftir Birgittu Hrönn Halldórsdóttur. Bókin heitir “Ævintýri tvíburanna” og hana prýða skemmtilegar og líflegar myndir eftir Ernu Hrönn Ásgeirsdóttur.
Á bókarkápu stendur: Tvíburarnir, Bjössi og Begga, sem sagan fjallar um eru átta ára og búa norður í Húnavatnshreppi. Einn daginn eignast þau dásamlega ferfætta vini, en hinn næsta kemur óvænt illa upp alin tíu ára frænka inn í líf þeirra. Börnin takast á við daglegt líf, óttann við að foreldrar þeirra skilji og endalausar spurningar vakna. Munu þeu eignast systkini? Hvers vegna skammar amma afa ekki fyrir að taka í nefið þegar hún er á ferðalagi? Mun Kalli frændi byrja með Rósu, gellunni á mótorhjólinu. Sagan lýsir vel lífinu í sveitinni, gleði og sorgum og ekki síður skemmtilegum uppákomum eins og þegar komið er upp um þjófinn sem braust inn í Samkaup á Blönduósi.
