Almennt tekist vel við framkvæmd sóknaráætlana

Framkvæmd sóknaráætlana landshluta hefur almennt tekist vel frá árinu 2015 að því er fram kemur í úttekt sem ráðgjafarfyrirtækið Evris gerði fyrir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið. Þar var lagt mat á það hvort tekist hefði að ná markmiðum samninga um sóknaráætlanir og jafnframt bent á atriði sem betur mættu fara og lagðar fram tillögur til úrbóta. Frá þessu er sagt í frétt á vef samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.

Í fréttinni kemur fram að ráðuneytið hefur hafið undirbúning að gerð nýrra samninga um sóknaráætlanir landshluta í samráði við stýrihóp Stjórnarráðsins um byggðamál og landshlutasamtök sveitarfélaga en samningarnir renna út í lok þessa árs. Úttekt á framkvæmd sóknaráætlana var liður í þeim undirbúningi. Stýrihópur Stjórnarráðsins hefur fjallað um úttektina og telur hana vera gott innlegg við undirbúning nýrra sóknaráætlanasamninga sem og framkvæmd nýrra sóknaráætlana.

Sóknaráætlanir eru stefnumótandi áætlanir sem taka til starfssvæða landshlutasamtaka sveitarfélaga að því er segir í lögum um byggðaáætlun og sóknaráætlanir landshluta. Í þeim koma fram stöðumat viðkomandi landshluta, framtíðarsýn, markmið og aðgerðir til að ná þeim markmiðum.

Hér má sjá skýrslu Evris um framkvæmd sóknaráætlana landshluta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir