Átaksverkefni til að fjölga sumarstörfum námsmanna

Félags- og barnamálaráðherra, hefur ákveðið að verja um 2,2 milljörðum króna í átaksverkefni til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn í sumar. Markmið verkefnisins er að með átakinu verði til 3.400 tímabundin störf fyrir námsmenn, 18 ára og eldri, á milli anna sem skiptast á milli opinberra stofnana og sveitarfélaga. Um er að ræða 4,5 sinnum stærra átak en ráðist var í eftir hrunið árið 2008.

Í frétt á vef félagsmálaráðuneytisins segir að átakið sé unnið í samvinnu við stofnanir ríkisins og sveitarfélög og er vinna við undirbúning þegar hafin. Öll sveitafélög munu skila inn tillögum til Vinnumálastofnunar og í framhaldi af því verða störfin auglýst. Áætlað er að undirbúningi verði lokið á næstu vikum og unnt verði að auglýsa störfin opinberlega fyrir 26. maí næstkomandi. Stofnanir og sveitarfélög þurfa að skapa ný störf í tengslum við átakið. Ráðningartími námsmanna er að hámarki tveir mánuðir og miðað er við tímabilið frá 1. júní til 31. ágúst.

„Við erum að setja aukinn kraft í atvinnuúræði fyrir námsmenn sem munu standa frammi fyrir erfiðleikum við að finna fá vinnu í sumar vegna þess óvissuástands sem nú ríkir vegna COVID-19 faraldursins. Þessar aðgerðir eru hluti af félagslegum aðgerðapakka sem er ætlað að veita mótvægi vegna þeirra áhrifa sem faraldurinn hefur á ýmsa hópa í samfélaginu,” segir Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir