Björgum kirkjugarðsveggnum

Eins og sjá má þarfnast kirkjugarðsveggurinn viðhalds og verkið fjárfrekt svo leitað er til almennings um stuðning. Mynd af Huni.is.
Eins og sjá má þarfnast kirkjugarðsveggurinn viðhalds og verkið fjárfrekt svo leitað er til almennings um stuðning. Mynd af Huni.is.

Stjórn Kirkjugarðs Blönduóss vinnur hörðum höndum við að bjarga kirkjugarðsveggnum frá eyðileggingu en í honum er listaverk mótað í steypuna eftir myndlistamanninn Snorra Svein Friðriksson frá Sauðárkróki. Á Húna.is kemur fram að verkefnið sé dýrt og þess vegna leitar stjórnin eftir stuðningi frá fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum undir kjörorðinu góða, „margt smátt gerir eitt stórt.“

Styrkja má þetta verðuga verkefni með því að leggja inn á reikning kirkjugarðsins númer 0307-13-600603 og er kennitalan 460300-3980. Stjórnin þakkar öllum þeim sem nú þegar hafa stutt verkefnið fyrir stuðninginn.
/Húni.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir