Björgunarskipið Húnabjörg aðstoðar vélarvana bát
Björgunarsveitin Strönd á Skagaströnd var kölluð út fyrr í dag vegna 200 t netabáts sem er vélarvana um 18 sjómílur vestan Skagastrandar, eða rétt við Gjögur á Ströndum. Er báturinn með veiðarfæri í skrúfunni.
Um 6-8 manns eru um borð. Björgunarskipið Húnabjörg fór til aðstoðar hinum vélarvana báti en ekki er talin vera mikil hætta á ferðum. Veður á svæðinu er þó ekki gott, 12-15 m/sek, eða kaldaskítur sé vitnað í orð heimamanna.
Húnabjörgin mun væntalega draga netabátinn til hafnar á Skagaströnd. Búist er við að verkið taki um fjórar klukkustundir.
/Landsbjörg.is

