Bókasafnið Dalsmynni opnar í kvöld
Í kvöld 15. nóvember opnar Bókasafnið í Dalsmynni í Húnavatnshreppi og er ætlunin að vera með upplestur úr bókum í tilefni þess.
Safnið verður opið hálfsmánaðarlega fram að áramótum frá kl. 20-22, þ.e. opið verður mánudagana 15. og 29. nóvember og svo 13. desember
Ólöf Einarsdóttir bókavörður segir í tilkynningu frá safninu að ávallt sé heitt á könnunni og eru allir íbúar Húnavatnshrepps velkomnir.
