Bólusetningar á HSN fyrir íbúa 80 ára og eldri í næstu viku

Í næstu viku, þann 2. mars, munu 720 skammtar af Pfizer bóluefninu berast á Norðurlandið. Samkvæmt frétt á heimasíðu HSN verður bóluefnið nýtt til að bólusetja íbúa 80 ára og eldri og er búist við að fara langleiðina með að klára þann hóp með þessum skömmtum. 

Á Akureyri verður fólk boðað með sms skilaboðum þar sem tími og staðsetning kemur fram en hringt verður í þá sem ekki hafa farsíma. Á Akureyri er gert ráð fyrir að bólusetja eftir hádegi þriðjudaginn 2. mars á slökkvistöð Akureyrar.

Á öðrum heilsugæslustöðvum á Norðurlandi fær fólk boð í bólusetningu annaðhvort með sms skilaboðum eða með símtali þar sem tími og staðsetning kemur fram. Bólusetningar munu fara fram dagana 2. - 5. mars.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir