BÖRN OG UMHVERFI
Rauðakrossdeild Austur-Húnavatnssýslu heldur námskeiðið, Börn og umhverfi, fyrir einstaklinga á aldrinum 12 - 15 ára. Á námskeiðinu sem er 16 kennslustundir, er farið í ýmsa þætti er varða umgengni og framkomu við börn.
Rætt verður um árangursrík samskipti, leiðtogahæfni, agastjórnun, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Lögð er áhersla á umfjöllun um slysavarnir og algengar slysahættur í umhverfinu ásamt ítarlegri kennslu í skyndihjálp. Að auki fá þátttakendur innsýn í sögu og starf Rauða krossins.
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Jóhanna Guðrún Jónasdóttir leikskólastjóri og Sigríður Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Námskeiðið er haldið dagana 9., 10., 11. og 12. maí 2011 frá kl. 17:00 - 20:00 alla dagana í húsnæði Blönduskóla. RKÍ A-Hún. greiðir hluta námskeiðs svo námskeiðsgjald fyrir hvern nemenda er því eins og verið hefur 4500 krónur. Innifalið er nemendahandbók og bakpoki með skyndihjálparbúnaði.
Skráningu lýkur sunnudaginn 8. maí.
Skráning og nánari upplýsingar hjá Einari Óla í síma 899 6428 og einar@hsb.is eða
Hafdísi í síma 892 7106 og hafdisvilhjalms@gmail.com
