Dagur leikskólans í dag

Mynd tekin af skagafjordur.is
Mynd tekin af skagafjordur.is

Dagur leikskólans er í dag, 6. febrúar, og er hann haldinn hátíðlegur hjá leikskólum landsins eins og vaninn er þennan dag. Veðrið er samt sem áður ekki að leika við okkur hér á Norðurlandi vestra og hefur skólahald t.d. raskast. Á heimasíðu Skagafjarðar segir að áætlað hafi verið að krakkarnir á eldra stigi leikskólans Ársala myndu syngi lög fyrir gesti og gangandi í Skagfirðingabúð kl. 10:15 en því hefur verið frestað vegna veðurs. En ef ég þekki rétt til þá verður eflaust húllumhæ á leikskólanum í staðinn fyrir krakkana. Á yngra stigi verður skólastarfið brotið upp með ýmis konar upplifun og skynjun fyrir börnin.

Börnin í leikskólanum Tröllaborg (Barnaborg) á Hofsósi ætla að setja upp myndlistarsýningu í kaupfélaginu á Hofsósi. Verður hún opin um nokkurt skeið og hvetjum við alla til að koma og skoða listaverk eftir listamenn framtíðarinnar. Í leikskólanumTröllaborg á Hólum (Brúsabæ) ætla börnin að bjóða foreldrum sínum, ömmum og öfum upp á heilsusnakk sem þau útbúa sjálf milli kl 15:00 og 15:55.

Í Varmahlíð var foreldrum barna í leikskólanum Birkilundi boðið í kaffi milli kl 14:30 og 15:45 í tilefni af Degi leikskólans og 25 ára afmælis Birkilundar en því hefur einnig verið frestað.

Sjötti febrúar er merkilegur dagur í sögu leikskólans því það var á þessum degi árið 1950 sem frumkvöðlar leikskólakennara stofnuðu fyrstu samtök sín. Markmiðið með Degi leikskólans er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og um leið beina athygli samfélagsins að því faglega og metnaðarfulla starfi sem innt er af hendi í leikskólum landsins á degi hverjum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir