Deildarmyrkvi á laugardaginn
Á Stjörnufræðivefnum er sagt frá því að deildarmyrkvi á sólu verður sjáanlegur frá Íslandi, snemma morguns laugardaginn 11. ágúst.
Deildarmyrkvi (e. partial solar eclipse) verður þegar sólin og tunglið eru ekki alveg í beinni línu og tunglið hylur sólina aðeins að hluta. Myrkvinn mun sjást frá öllu landinu ef vel viðrar. Deildarmyrkvinn mun verðe mestur norðvestanlands þar sem tunglið hylur um 14% sólar.
Nauðsynlegt er að nota viðeigandi hlífðarbúnað til að sjá deildarmyrkvann, það er sólmyrkvagleraugu og/eða sjónauka með sólarsíu. Venjuleg sólgleraugu duga ekki.
- Á höfuðborgarsvæðinu snertir tunglið sólina kl. 08:10. Þar nær myrkvinn hámarki kl. 08:44 og hylur tunglið þá rétt rúmlega 10% af sólinni. Myrkvanum lýkur svo kl. 09:19.
- Á Ísafirði hefst myrkvinn kl. 08:10 og er í hámarki kl. 08:47 þegar tunglið hylur 14% sólar. Þar lýkur myrkvanum kl. 09:25.
- Á Akureyri hefst myrkinn kl. 08:11 og nær hámarki kl. 08:48 þegar tunglið hylur 12% sólar. Þar lýkur myrkvanum kl. 09:25.
- Á Egilsstöðum hefst myrkvinn kl. 08:13 og nær hámarki kl. 08:49 þegar tunglið hylur tæplega 11% sólar. Þar lýkur myrkvanum kl. 09:26.
- Í Vestmannaeyjum hefst myrkvinn kl. 08:11 og nær hámarki kl. 08:44. Þá hylur tunglið tæplega 9% af sólinni. Myrkvanum þar lýkur kl. 09:17.
Síðst deildarmyrkvi sem sást frá Íslandi var þann 21. ágúst 2017. Þá huldi tunglið um og yfir 2% sólar frá Íslandi séð en á sama tíma sást almyrkvi frá Bandaríkjunum. Deildarmyrkvinn nú er sá mesti síðan 20. mars 2015.
Deildarmyrkvinn mun sjást best rétt sunnan og norðan heimskautsbaugs: Frá norðaustur Kanada, Grænlandi, Íslandi, norður Evrópu og norðausturhluta Asíu. Hvergi mun almyrkvi sjást að þessu sinni.
Tunglið mun verða næst jörðu innan við sólarhring áður en myrkvinn á sér stað.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.