Dregið úr takmörkunum á samkomum og skólahaldi frá 4. maí

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Mynd: Stjórnarráðið.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Mynd: Stjórnarráðið.

Forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra kynntu á blaðamannafundi í dag næstu skref stjórnvalda vegna Covid-19. Heilbrigðisráðherra gerði þar grein fyrir ákvörðun sinni um tilslakanir á takmörkunum á samkomum og skólahaldi. Breytingarnar taka gildi 4. maí.

Í þeim felst m.a. að opnað verður fyrir hefðbundið skólahald í leik- og grunnskólum, unnt verður að opna framhalds- og háskóla á ný með takmörkunum, fjöldamörk samkomubanns verða hækkuð úr 20 í 50 manns, heimilt verður að hefja á ný ýmsa þjónustu, s.s. á hárgreiðslu- nudd- og snyrtistofum, tannlæknar geta tekið til starfa og söfn geta opnað á ný fyrir viðskiptavinum sínum. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

Rúmlega 1700 manns hafa greinst með COVID-19 hér á landi og rúmlega hundrað manns lagst inn á sjúkrahús af völdum sjúkdómsins en í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra hefur nýsmitum farið fækkandi að undanförnu. Talið er að faraldurinn sé í rénun hér á landi sem þakka megi víðtækum samfélagslegum aðgerðum sem gripið hefur verið til. Sóttvarnalæknir bendir á að samfélagslegt smit sé lítið eða innan við 1% samkvæmt sýnatökum Íslenskrar erfðagreiningar. Á vef stjórnarráðsins segir það þýði að ef slakað er um of á gildandi takmörkunum skapist hætta á að faraldurinn blossi upp aftur. Sóttvarnalæknir leggur því til að slakað verði á takmörkunum í skrefum sem endurskoðuð verði með þriggja til fjögurra vikna millibili.

Helstu breytingar sem verða 4. maí næstkomandi:
Fjöldamörk samkomubanns miðast við 50 einstaklinga í stað 20 áður. Reglur um tveggja metra fjarlægð haldast óbreyttar.
Skólastarf í leik- og grunnskólum verður með eðlilegum hætti.
Í framhalds- og háskólum gildir meginreglan um hámark 50 einstaklinga í sama rými.

Ýmis þjónusta:
Hárgreiðslustofur, nuddstofur, sjúkraþjálfun, snyrtistofur, söfn og sambærileg starfsemi geta hafið starfsemi en halda skal 2 m fjarlægð milli viðskiptavina eins og kostur er.

Heilbrigðisþjónusta:
Öll heilbrigðisstarfsemi sem ekki felur í sér valkvæðar skurðaðgerðir eða aðrar ífarandi aðgerðir verður heimil. Tannlækningar verða einnig heimilar.

Íþróttir
Skipulagt íþróttastarf barna á leik- og grunnskólaaldri verður heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:
Ekki fleiri en 50 einstaklingar verða saman í hóp.
Halda skal tveggja metra fjarlægð eftir því sem það er unnt, einkum hjá eldri börnum.

Annað skipulagt íþróttastarf er heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:
Ekki fleiri en fjórir einstaklingar æfa eða leika saman.
Snertingar eru óheimilar og halda skal tveimur metrum á milli einstaklinga.
Notkun á sameiginlegum búnaði skal haldið í lágmarki en annars skal sótthreinsa hann á milli notkunar.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir