Ekki í anda MeToo að gægjast á glugga

Gluggagægir er tíundi jólasveinninn. Hann er vanur að laumast að gluggum og gægjast inn. Oft girnist hann þá eitthvað sem hann sér og reynir seinna að komast yfir það. Náskyldur honum er sveinn sem í gömlum heimildum er nefndur Gangagægir og hefur trúlega gægst inn í bæjargöngin í svipuðum erindagjörðum. Tekið af mjolk.is.

Það er ekki upp á drengina hans Leppalúða logið með dónaskap og hyskni. Í nótt kom enn einn durturinn til byggða og glennti glyrnurnar inn um glugga landsmanna. Sá heitir Gluggagægir og herma heimildir að inni á löggustöð liggi kæra á hendur honum frá heiðviðri frú fyrir þennan ósóma, enda ekki í anda MeToo. En þar sem kominn er föstudagur látum við flakka eitt jólalag með Vandræðaskáldunum frá Akureyri en sungið er um rauð jól, annars konar rauð en flestir þekkja. 

Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.

Á heimasíðu Jólamjólkur er hægt að finna góðar uppskriftir m.a. hreindýrabollakökur, sem eru einmitt í uppáhaldi hjá Gluggagægi. Sjá HÉR.

Rauð jól

Það stefnir í rauð jól í ár! Við Vandræðaskáld höfum samið samtals tvö jólalög, en það er sennilega helsta ástæða þess að við héldum ekki jólatónleika í ár. Okkur finnst við þurfa að semja allavega eitt lag í viðbót til að réttlæta miðaverðið 14.990 kr. Fyrra lagið er lífsreynslusaga um þetta séríslenska fyrirbæri sem eru rauð jól, það er varla birtingarhæft, en við birtum það samt hér. Fallegra lagið birtist svo á Þorláksmessu. #vandræði #rauðjól #Eldborgánæstaári

Posted by Vandræðaskáld on Fimmtudagur, 20. desember 2018

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir